Akureyri 27-29 nóvember 2009
Það var spenntur og kátur hópur drengja sem lagði af stað með flugfélagi Íslands norður til Akureyrar föstudaginn 27 nóvember, til móts við við önnur handknattleikslið í þessum aldurshópi.
Framundan var helgi vona og væntinga fjarri heimahögum. Strax í fluginu var ljóst að menn ætluðu sér að ná árangri á handknattleiksvellinum þar sem nokkrir leikmanna óskuðu eftir te-i, sumir fengu sér vatn
en aðrir lásu bara blöðin eða hlustuðu á tónlist. Allir fengu sér þó súkkulaðimola sem í boði var en menn áttu reyndar miserfitt með að skilja að það væri bara einn á mann og eru þar þjálfarar og fararstjórar eigi undanskildir.
Er lent var á Akureyri spurðist það hratt út á meðal hópsins að 6 flokkur kvenna væri líka að keppa á staðnum og það sem meira var, þær gistu á sama stað... já sææææææll !
Varð nokkur töf á brottför rútunnar frá flugvelli þar sem að leikmenn geystust hver á fætur öðrum inn á salerni flugstöðvar til að gela sig og greiða, nokkrir þurftu svo einnig endilega að skipta um föt.
Hálftíma síðar eða svo var hægt að leggja af stað frá flugvellinum upp í skóla þar sem við gistum. Er þangað var komið komu menn sér fyrir í skólastofunni þar sem FH liðið átti heima þessa helgina og menn gerðu sig klára fyrir fyrsta leik, sem var strax klukkutíma síðar. FH telfdi fram tveimur liðum á þessu móti og áttu bæði liðin einn leik fyrir höndum. Leikmenn FH gengu stífpressaðir til leiks, í ný straujuðum keppnisbúningum að heiman með ca. sjö kíló af geli í hausnum, menn voru komnir til að sjá og sigra.
Svo fór að annað liðið vann sinn leik og hitt liðið gerði jafntefli í æsispennandi leik fyrir troðfullu húsi áhorfenda. Að þessum leikjum loknum var farið í mat og menn borðuðu vel, reyndar er það nú oft þannig að sumir borða meira en aðrir og þurftu mótshaldarar að kalla út aukamannskap til að anna eftirspurn annars þjálfara FH liðsins, það var ljóst að honum þótti maturinn góður.
Að kvöldmat loknum var síðan " róleg stund " eins og fólk getur ímyndað sér þegar um 600 stk af 11-12 ára krökkum af báðum kynjum koma saman. Er líða fór á kvöldið var farið í það að koma mannskapnum saman til að sofa og tók það ágætis tíma eins og gengur og gerist. Að endingu sofnuðu allir eftir vel heppnaðann fyrsta dag.
Sólin var vart komin upp þegar einum leikmanna FH fannst þetta orðið gott af hvíld og kallaði ræs, reyndar nokkrum sinnum og með ólíkum áherslum þannig að ekki aðeins FH liðið vaknaði heldur einnig önnur lið sem voru í stofum nálægt okkur. Ekki voru allir á eitt sáttir við þessa morgunvakningu og höfðu nokkrar mæður annara liða á orði að þetta væri náttúrulega ótækt. Ekki var nú samt við þessu að gera, Liðin voru vöknuð þökk sé árrisulum FH-ing og dagurinn hafinn.
Menn skelltu sér í morgunmat nokkru síðar og var ljóst að mótshaldarar ætluðu sér ekki að lenda í því sama og kvöldið áður og nægur mannskapur á staðnum við að bera fram matinn, ákveðnum þjálfara FH liðsins til mikillar ánægju.Laugardagurinn fór síðan í spil og aftur spil, tveir leikir hjá báðum liðum sem allir unnust, frábær árangur laugardags og ljóst að menn gátu gengið knarreistir til skemmtunar sem fram fór í KA heimilinu þá um kvöldið. Hópurinn skellti sér í sund og slakaði á, eða þannig sko. Skemmtiatriði, leikir og ball í kjölfarið var eitthvað sem mönnum þótti ekkert sérstaklega leiðinlegt.
Áður en haldið var af stað á skemmtunina var þó farið í betri gallann, GEL í hárið og allt klárt.
Menn skemmtu sér hið besta á skemmtuninni/ballinu og ljóst að það var ekkert verra að hafa stelpurnar líka á staðnum. Nokkuð var þó farið að draga af okkar mönnum þegar líða tók á, enda var vaknað svolítið snemma um morguninn og menn því ferjaðir heim á leið hver á fætur öðrum. Við heimkomu beið þeirra samloka, ávextir og trópí sem farastjórar og þjálfarar voru búnir að gera klárt. 15 minútum síðar eða svo voru allir leikmenn FH farnir að hrjóta og rumskuðu ekki fyrr en þeir voru vaktir til að hefja leik morguninn eftir. Mæður annara liða voru þokkalega sáttar núna.
Sunnudagurinn var síðan spil og aftur spil. Annað liðið vann báða leikina sína og þar með alla leikina í mótinu, voru krýndir Hagkaupsmeistarar að móti loknu.
Hitt liðið vann annann leikinn og tapaði hinum og lenti í öðru sæti í sínum riðli. Frábær árangur beggja liða og ljóst að þjálfarar halda starfi sínu amk fram yfir áramótin.
Eftir að hafa skellt í sig kjötbollum ( sumir fengu sér ansi marga skammta ), tekið saman dótið og gengið frá svefnaðstöðunni var haldið út á flugvöll, að sjálfsögðu með viðkomu hjá henni Brynju - ís.
Hópurinn flaug síðan heim eftir skemmtilega helgi á Akureyri, þreyttir og sælir og var gaman að sjá hvað drengirnir voru glaðir að sjá mömmu sína aftur.
Vert er að taka fram í lokin að KA og Þór eiga miklar þakkir skildar fyrir óaðfinnanlega framkvæmd móts og hlýtt viðmót alls starfsfólks.
f.h. Ferðamálaráðs
Ásgeir Jónsson